07.12.1981
Neðri deild: 18. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1246 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)
83. mál, kosningar til Alþingis
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Úr því að enginn ætlar að taka til máls um þetta frv. vil ég leyfa mér að vekia athygli hv. þm. á 5. gr. frv., en þar er atriði sem menn reka ekki fyrst augun í þegar litið er á efni þessa frv. Þar segir svo, með leyfi forseta: „Kosning utan kjörfundar fer svo fram, að kjósandi stimplar á kjörseðilinn.“ — Ég vil leyfa mér að upplýsa hv. þm. um að hér er á ferðinni mikið kjaramál og mikið áhugamál fólks, sem er fatlað, og einkum blindra. Hér kann að vera að einhverjum þyki í nokkurn tilkostnað ráðist, að þessir stimplar skuli keyptir, en mér þykir rétt að vekja á því athygli, að þetta er mikið hagsmunamál blindra og ekki úr vegi að hið háa Alþingi sinni þeim málum á ári fatlaðra.
Að öðru leyti vil ég lýsa ánægju minni með þetta frv. og fagna því, að það er komið frá hv. Ed., og mun styðja það eins og það er. En einkum vildi ég vekja athygli á því atriði sem ég hef hér nefnt.