08.12.1981
Sameinað þing: 32. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í B-deild Alþingistíðinda. (1067)
Umræður utan dagskrár
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það er afar eðlilegt að hv. 1. þm. Reykv. kveðji sér hér hljóðs og ræði um hvað fram undan sé og hvaða ákvarðanir ríkisstj. hafi tekið um jólaleyfi þm. og hvernig standa skuli að hugsanlegum efnahagsaðgerðum. Ég átti satt að segja frekar von á að hæstv. landbrh. kæmi fyrr í ræðustól og gerði þingheimi betur grein fyrir því, sem hann sagði í véfréttarstíl í ræðu sinni, en hann kysi að sitja og þegja undir þessum ræðum. Hvað þýðir það þegar hæstv. ráðh. kemur í ræðustól og segir að þjóðinni og þinginu verði gerð grein fyrir tillögum ríkisstj.? Þýðir þetta, eins og hv. síðasti ræðumaður spurðist fyrir um, að þinginu verði sýndar þessar tillögur áður en þær verða gerðar að lögum? Þetta er sú spurning sem þingheimur bíður eftir að fá svar við. Auðvitað búast allir við því, að þingið verði sent heim, og það vitum við öll að er vegna þess að hæstv. ríkisstj. er logandi hrædd um að eigin fylgismenn hennar hér á hv. Alþingi séu ekki tilbúnir að fylgja henni yfir hvað sem er um þessi áramót.
En það eru fleiri hæstv. ráðherrar í salnum en hæstv. landbrh. Hér hinum megin situr hæstv. viðskrh. og hann þegir líka þunnu hljóði. Hann flutti ræðu þegar fjárlög voru til l. umr. og sagði þá m. a. að nú væri kominn tími til að telja verðbólguna niður og það ætti ekki að gera eingöngu með því að telja niður verðlagið, heldur líka — og ég undirstrika það — verðbætur á laun. Ef þessi orð hæstv. viðskrh. á að skilja eins og hverja aðra íslensku get ég ekki séð annað en efna verði til efnahagsaðgerða sem styðjast eiga við lög um kjaraskerðingu verkalýðsins í landinu. Sé þetta ekki rétt skilið finnst mér ástæða til þess að hæstv. viðskrh. komi í ræðustól og geri þingheimi grein fyrir því, hvað hann átti við.
Í dag, seinni partinn, lætur enginn hæstv. ráðh. Alþb. sjá sig. Meðal okkar er þó einn talsmaður Alþb., hv. 7. þm. Reykv., Guðmundur J. Guðmundsson. Hvað ætlar þessi hv. þm. að gera í jólafríinu? Ætlar hann að bíða eftir að ríkisstj., sem hann styður, efni til efnahagsráðstafana eins og hún gerði um síðustu jól? Ætlar hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson að mæta í Austurbæjarbíói á fund hjá Dagsbrún og lofsyngja slíkar aðgerðir? Eða ætlar kannske hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson að panta sé far með bíl til Stykkishólms og dvelja þar um jólin? Vissulega væri ástæða til þess, að hv. þm. kæmi hér upp og svaraði þessum spurningum. Ætlar hann enn á ný að láta yfir sig ganga efnahagsráðstafanir eins og gerðar voru um síðustu jól og eru sams konar ráðstafanir og hæstv. viðskrh., Tómas Árnason, boðaði í ræðu sinni hér á hv. Alþingi?
Hér á hv. Alþingi situr jafnframt einn af nm. í efnahagsmálanefnd ríkisstj., hv. 12. þm. Reykv., Guðmundur G. Þórarinsson. Hann sést hér í svip, hleypur hér um dyr og er líklega að leita að samstarfsmönnum sínum í nefndinni, þeim hv. þm. Ólafi Ragnari og Jóni Ormi Halldórssyni. Ég get upplýst þennan hv. þm. um að þeir eru báðir erlendis eins og ráðh. Það væri kannske ástæða til að taka mark á frammíkalli hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar, því að hann gaf ríkisstj. þar ágætishugmynd, að það væri best að setja aðflutningsgjald á allt þetta lið, bæði hæstv. ráðh. og stuðningsmenn hennar, þegar þeir eru að fara utan og heim. Það væri áreiðanlega nýr og góður tekjustofn fyrir ríkisstj. (Gripið fram í). Mér heyrðist hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson segja að við ættum frekar að spara með því að kosta bara aðra leiðina. Hafi hann sagt það er það tillaga líka.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri, en ég óska eftir því, að þeir menn, sem ég hef beint spurningum til, komi hingað og geri frekari grein fyrir sjónarmiðum sínum og nýjum uppástungum.