10.12.1981
Neðri deild: 20. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)

100. mál, Stofnlánadeild verslunarfyrirtækja

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um Stofnlánadeild verslunarfyrirtækja og hefur skilað nál. á þskj. 150. Hér er um það að ræða að heimila þessum lánasjóði að lána til allt að 25 ára. Sú eina breyting, sem hér er gert ráð fyrir, er að lengja þessa heimild úr 12 árum í 25 ár.

Fjh.- og viðskn. leggur einróma til að frv. þetta verði samþykkt.