10.12.1981
Neðri deild: 20. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1386 í B-deild Alþingistíðinda. (1152)

96. mál, tímabundið vörugjald

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það er að sjálfsögðu hreinn fyrirsláttur þegar menn bera fyrir sig að geta ekki tekið ákveðna afstöðu til tillagna sem hér eru fluttar í einu og öllu samkv. þingsköpum, og ættu þm. að kynna sér þær áður en þau orð eru viðhöfð þegar afstaða er tekin til mála í atkvgr. Afstaða mín er ekki bundin af mennta- eða listahroka. Ég styð þetta mál, sem hefur verið hér til umr. nokkuð lengi, og segi já.