11.12.1981
Efri deild: 21. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1435 í B-deild Alþingistíðinda. (1193)

101. mál, Stofnlánadeild samvinnufélaga

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Ég hygg að sú athugasemd sé rétt, að það sé ekki heimilt að mæla fyrir tveimur málum í einu. Ég lít þess vegna svo á að framsöguræða hæstv. ráðh. hafi einungis verið um fyrra málið en ekki hið síðara. En ég geri enga athugasemd við það að engin framsaga sé flutt fyrir því síðara og mun styðja að framgangi þess.