14.12.1981
Sameinað þing: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (1249)

1. mál, fjárlög 1982

Geir Gunnarsson:

Herra forseti. Á fundi með forsetum Alþingis í síðustu viku var ákveðið að hafa útbýtingarfund á laugardaginn síðasta og ég vissi ekki annað en að sá fundur yrði haldinn og þá yrði útbýtt till. frá fjvn. Síðan var ekkert samband haft við mig um þetta frekar, en þær fréttir bárust út í Þórshamar að af þessum fundi yrði ekki og þá var vinnu nefndarinnar hagað í samræmi við það. En þegar á þeim fundi, sem ég sat með forsetum Alþingis í síðustu viku, lá fyrir þskj. 155 með 158 brtt. frá nefndinni sem fjvn. hafði ákveðið að bíða með að láta útbýta þar til á laugardaginn á þeim fundi sem ekki varð af og ég vissi ekki um annað en að yrði haldinn.