14.12.1981
Sameinað þing: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (1257)
1. mál, fjárlög 1982
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég óska eftir því að hér sé gott samstarf í þinginu um framgang mála. Það er sjálfsagt öllum ljóst og ég veit ekki til þess að það hafi verið ágreiningur um það, að heppilegt væri að afgreiða fjárlög á hverjum tíma fyrir áramót. Mér þykir sennilegt að talsmenn stjórnarandstóðunnar séu mér sammála um það. Það er enn fremur mjög æskilegt, ef nokkur tök eru á, að afgreiða lánsfjáráætlun fyrir jólin. Það fer að styttast tími til jóla og þess vegna held ég að okkur sé mjög nauðsynlegt að nota þennan tíma vel og láta hann ekki fara í ónauðsynlegt og tímafreki karp. Við eigum að geta komið okkur saman um þetta.
Ég vil fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann taki það gaumgæfilega til athugunar, hvort ekki sé mögulegt að verða við óskum formanns þingflokks Alþfl. um að haga þannig vinnu að 2. umr. verði ekki lokið hér í kvöld, heldur verði unnið hér fram eftir nóttu og menn tali eftir því sem þeir hafa áhuga á og þekkingu, en síðan lesi menn sér til í nótt og í fyrramálið og ef eitthvað nýtt kemur fram í þeim lestri, sem þeir þyrftu nauðsynlega að koma að, hefðu þeir tækifæri til þess á fundi kl. 2, síðan yrði farið í atkvgr. á fundi síðdegis. Nú er mér ekki alveg fullkomlega ljóst hvort það eru tæknilegir örðugleikar á þessari tilhögun hjá starfsmönnum þingsins, en mér þykir þó frekar ólíklegt að svo þurfi að verða. Ég vil því óska eftir því við hæstv. forseta, að hann kannaði hvort ekki væri einhver leið að fara svona að.
Ég held að þm. séu yfirleitt ekki mjög ókunnugir þeim tillögum sem hér var útbýtt í dag, þeir hafa verið að vinna að þessum málum undanfarnar vikur, og ég held að það ættu ekki að þurfa að verða mjög miklar umræður á morgun, menn séu orðnir nokkuð fróðir um þessi mál.
Ég endurtek svo óskir um mjög gott samstarf, sem allra best samstarf við þm. stjórnarandstöðunnar. Ég teldi heppilegt að við formenn þingflokkanna hittumst og reyndum að finna okkur stund í dag til að ræða um meðferð mála og síðan í framhaldi af því e. t. v. að hafa samband við forseta þingsins um vinnutilhögun í vikunni.
Hvað viðkemur frásögn hv. 1. þm. Vestf. af sameiginlegum fundi fjh.- og viðskn. kom mér afskaplega mikið á óvart að þeir skyldu geta látið skerast þar í odda. Hv. formaður fjh.- og viðskn. Ed., Ólafur Ragnar Grímsson, er eins og menn vita þjóðkunnur maður að hófsemi og gætni í orðavali og hv. 1. þm. Vestf. er mjög þingvanur maður og auk þess sérstaklega samvinnulipur.