15.12.1981
Sameinað þing: 36. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1553 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)

1. mál, fjárlög 1982

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Þm. Alþfl. hafa flutt till. um lækkun á tekjuskatti og lækkun á útgjöldum á móti. Sú till. hefur verið felld. Hins vegar fylgir ekki þessari afgreiðslu, ef þessi till. yrði felld, nein afgreiðsla um tekjulækkun á móti, svo að þm. Alþfl. neyðast til þess að taka ekki þátt í þessari atkvgr. og greiða ekki atkv.