18.12.1981
Neðri deild: 28. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1827 í B-deild Alþingistíðinda. (1456)

Umræður utan dagskrár

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Það er ekki að ófyrirsynju að þessar umr. fara fram. Hér er um að ræða einu umtalsverðu nýframkvæmdina sem til hefur staðið að vinna í valdatíð hæstv. núv. iðnrh., og nú stendur til að fresta þeirri framkvæmd eins og öllum öðrum framkvæmdum í orkumálum í hans tíð. Þess vegna hlýt ég að spyrja hæstv. forseta þessarar deildar. Hvenær áformar hann að þessum umr. verði haldið áfram? Ég óska eftir að þeim verði haldið áfram þannig að tími gefist til að fá svar við spurningu hv. þm. Eggerts Haukdals áður en menn fara í jólafrí.