18.12.1981
Efri deild: 28. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1835 í B-deild Alþingistíðinda. (1481)

96. mál, tímabundið vörugjald

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Þetta mál hefur áður verið til umr. hér á Alþingi og að þessu sinni leggur meiri hl. n. til að frv. verði samþykkt á líkan hátt og áður og þetta gjald þar með framlengt. Það er óþarfi að rekja sögu þess hér. Hún er öllum kunn hér á þinginu og ég sé ekki ástæðu til að rekja hana nánar hér. Ég mæli hins vegar með því að frv. verði samþykkt.