18.12.1981
Efri deild: 32. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1877 í B-deild Alþingistíðinda. (1556)

Starfslok efri deildar

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Fyrir hönd okkar þm. í þessari hv. deild vil ég þakka hlý orð í okkar garð og góðar óskir. Ég tek undir þakkir forseta til starfsfólks þingsins og ég vil þakka honum fyrir frábæra og drengilega fundarstjórn og umburðarlyndi í okkar garð. Fyrir hönd okkar þm. í deildinni vil ég færa forseta og fjölskyldu hans bestu jóla- og nýársóskir og árna honum góðrar heimferðar og heimkomu. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir þessa ósk með því að rísa úr sætum. —[Deildarmenn risu úr sætum.]