19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1886 í B-deild Alþingistíðinda. (1588)

1. mál, fjárlög 1982

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Þessi liður er um að taka erlent lán eða ábyrgjast lán vegna Áhaldahúss vitamálaskrifstofunnar til að kaupa fleka til borunar og sprenginga fyrir dýpkanir í höfnum. Þetta erindi barst hv. fjh.- og viðskn. Ed. og var því synjað þar. Á þeim fundi var einnig synjað fyrir lántökur til hitaveitna og orkuframkvæmda vegna þess að það mætti ekki taka meiri erlend lán. Skömmu síðar kom þessi till. fram í fjvn. og var þar felld inn í till. okkar fjvn.-manna, en við lýstum sérstökum fyrirvara okkar um þetta mál m. a. af þessum sökum. Ég greiði ekki atkv.