19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1888 í B-deild Alþingistíðinda. (1596)

1. mál, fjárlög 1982

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég undrast nokkuð þær umr. sem fara fram við þessa atkvgr. um lið sem öll fjvn. stendur að baki. Ég veit ekki betur en í frv. til lánsfjárlaga sé gert ráð fyrir lántöku að upphæð 40 millj. kr. til Skipaútgerðar ríkisins, og hef ég ekki orðið var við andstöðu þar að lútandi. Öll fjvn., þar með þm. stjórnarandstöðunnar, stendur að þessum till. Ég segi já.