19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1889 í B-deild Alþingistíðinda. (1600)

1. mál, fjárlög 1982

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Ég skal ekki fortaka að eitthvað hafi ekki gerst síðustu 2–3 árin þessu líkt. Ég er hér með fjárlög frá 1977 og það er ljóst mál að í 1. gr. fjárl. stendur: Erlent lán. Það þýðir hins vegar ekki að sú heimild hafi ekki verið samþykkt með venjulegum lögum. 1977 voru lánsfjárlög samþykkt áður en 3. umr. fjárlaga fór fram.