19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1892 í B-deild Alþingistíðinda. (1610)

1. mál, fjárlög 1982

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Þessi till. er aðeins um heimild til að fella niður ákveðna upphæð. Í trausti þess, að nákvæm athugun fari fram á fjármálum þessarar hafnar og jafnframt að þar sem áskilið er samþykki fjvn., þá skil ég það svo, að það eigi að vera sameiginlegt eða einróma samþykki fjvn. því sé ég ekki ástæðu til annars en að veita þessa heimild og segi já.