19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (1632)

Þingfrestun

Ólafur G. Einarsson:

Í nafni okkar alþm. óska ég hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Jafnframt þakka ég hæstv. forseta góða og réttláta fundarstjórn og tillitssemi við okkur alþm. Starfsliði Alþingis færum við og þakkir og hátíðarkveðjur. — Ég ítreka óskir okkar um gleðilega jólahátíð hæstv. forseta til handa og bið þingheim að taka undir þær óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]