19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1900 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

Þingfrestun

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 104. löggjafarþings, frá 19. des. 1981 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 20. jan. 1982.

Gjört í Reykjavík, 18. desember 1981.

Vigdís Finnbogadóttir.

Gunnar Thoroddsen.“

Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 104. löggjafarþings, er frestað frá 19. des. 1981 og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 20. jan. 1982.

Hv. alþm., starfsfólki Alþingis og landslýð öllum flyt ég óskir um gleðileg jól og farsælt nýár.