26.01.1982
Sameinað þing: 42. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1970 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Jón Helgason):

Vegna orða hv. 4. þm. Reykv. vil ég taka undir það, að ég hefði óskað þess, að hægt hefði verið að taka fyrir fleiri fsp. á þessum fundi. En ég hef kannað það, að annaðhvort eru fyrirspyrjendur ekki tilbúnir með sínar spurningar eða hæstv. ráðh. með svör. — Hæstv. utanrrh. er kominn, en því miður var ég búinn að taka málin út af dagskrá áður en hann kom í salinn svo að því verður þá ekki breytt í þetta sinn.