27.01.1982
Neðri deild: 34. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2038 í B-deild Alþingistíðinda. (1727)

168. mál, dýralæknar

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vil nú aðeins gera þá athugasemd við tillögur yfirdýralæknis, að samkvæmt hans tillögum á Breiðumýri að vera í hinu eystra umdæminu, þannig að Breiðumýri er alls ekki í dýralæknisumdæminu hinu vestra, og nákvæmlega jafnlangt er að vegamótum frá Breiðumýri og Húsavík, þannig að þetta er bara þráhyggja.