28.01.1982
Sameinað þing: 44. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (1733)
354. mál, efnahagsmál
Forseti (Jón Helgason):
Útvarpsumræðan skiptist í tvær umferðir. Í fyrri umferð gerir forsrh. grein fyrir skýrslunni, síðan fá fulltrúar þingflokka 15–20 mínútur hver. Í síðari umferð hafa stuðningsmenn ríkisstj. í Sjálfstfl. 5–10 mínútur til umráða og fulltrúar þingflokka 10–15 mínútur. Röð flokkanna verður þessi í fyrri umferð: Forsrh., Sjálfstfl., Alþb., Alþfl. og Framsfl. Í síðari umferð: Stuðningsmenn ríkisstj. í Sjálfstfl., Sjálfstfl., Alþb., Alþfl. og Framsfl.
Af hálfu stuðningsmanna ríkisstj. í Sjálfstfl. tala Friðjón Þórðarson dómsmrh. og Pálmi Jónsson landbrh. í síðari umferð. Af hálfu Sjálfstfl. talar Friðrik Sophusson, 10. þm. Reykv., í fyrri umferð og Ólafur G. Einarsson, 3. þm. Reykn., í síðari umferð. Ræðumaður Alþb. í fyrri umferð er Ragnar Arnalds fjmrh., en Svavar Gestsson félmrh. í síðari umferð. Ræðumaður Alþfl. í fyrri umferð er Kjartan Jóhannsson, 2. þm. Reykn., og Benedikt Gröndal, 4. þm. Reykv., í síðari umferð. Ræðumaður Framsfl. í fyrri umferð er Steingrímur Hermannsson sjútvrh., en Tómas Árnason viðskrh. í síðari umferð.
Hefst nú umr. og tekur hæstv. forsrh. fyrst til máls.