01.02.1982
Neðri deild: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2113 í B-deild Alþingistíðinda. (1769)

Umræður utan dagskrár

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vil bara þakka hæstv. sjútvrh. þau orð sem hann sagði hér síðast, því að það kom mun skýrar fram í þeim orðum, að hann væri ákveðinn í því að sjá til þess, að loðnustofninum eða því sem eftir er af honum yrði a. m. k. ekki eytt af mannavöldum. Þakka ég honum fyrir þau orð, því að þar hefur hann sagt það sem ég hef verið að leita eftir við þessar umr. í dag.