23.02.1982
Sameinað þing: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2587 í B-deild Alþingistíðinda. (2207)
181. mál, íþróttaþættir sjónvarpsins
Fyrirspyrjandi (Guðmundur G. Þórarinsson):
Herra forseti. Ég vil mótmæla þeim orðum einstakra þm., að hér sé um eitthvert sérstaki sjónarspil að ræða sem sett hafi verið á svið. Það er mikill misskilningur. Ég skýrði frá því, þegar ég flutti þessa fsp., að hún væri flutt í samráði við og að beiðni nokkurra forustumanna innan íþróttahreyfingarinnar, og það með að mér hefur skilist, eftir því sem ég hef næst komist, að illa hafi gengið að fá þessar upplýsingar fram. Þess vegna var beðið um að fá þær á Alþingi.
Vegna orða hv. þm. Benedikts Gröndals vil ég að það komi alveg skýrt fram, að ég hef ekki í neinu verið að ásaka menntmrh. varðandi þetta mál. Ég hef beðið hann aðsvara ákveðnum spurningum, en síðan hef ég beint því til hans sem yfirmanns Ríkisútvarpsins að hlutast til um að uppfyllt verði ákvæði rammasamningsins um að gerðir verði sérsamningar við hvert íþróttasamband. Það er ekki gagnrýni á hann sem slíkan í einu eða neinu sem þar kemur fram, enda hljóta allir að skilja að einstakur ráðh. getur ekki og hefur ekki möguleika til að fara ofan í alla samninga sem einstakar stofnanir hans gera, langt frá því. Hins vegar beini ég þeim orðum til hans, að í þessu tilviki hlutist hann til um og athugi vel að ákvæði þessa samnings verði uppfyllt.