23.02.1982
Sameinað þing: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2591 í B-deild Alþingistíðinda. (2214)
355. mál, réttarstaða fólks í óvígðri sambúð
Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Vegna fsp. hv. 10. landsk. þm., Jóhönnu Sigurðardóttur, á þskj. 322 varðandi undirbúning að lagareglum um réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð með vísun til þál., sem samþ. var á Alþingi 17. febr. 1981, vil ég gefa eftirfarandi upplýsingar:
Nokkur síðustu ár hafa sifjalaganefndir á Norðurlöndum unnið að endurskoðun á lagareglum um fjármál hjóna. Það endurskoðunarstarf hefur jafnframt beinst að því að athuga hugsanlegar lagareglur um fjármál fólks í óvígðri sambúð, en lagareglur um það efni eru ekki í gildandi lögum í neinu af ríkjunum. Er í því efni ekki síst hugað að reglum um ráðstöfun sameiginlegs húsnæðis við samvistarslit svo og fjárskipti við þær aðstæður, enn fremur að réttarstöðu eftirlifandi aðila við lát annars. Greinargerðir um athuganir hinna einstöku nefnda komu út á árinu 1980 að því er Danmörk og Noreg varðar, og fjalla þær greinargerðir um þetta afmarkaða efni, en 1981 kom út heildargreinargerð að því er Svíþjóð varðar.
Íslensk frumgreinargerð kom einnig fram á árinu 1981 og fjallar bæði um fjármál hjóna og fjármál fólks í óvígðri sambúð. Þótti rétt að kynna hana á þessu stigi ýmsum félögum lögfræðinga og kvennasamtökum svo og Jafnréttisráði og Félagi einstæðra foreldra. Umsagnir þessara aðila liggja enn ekki fyrir.
Hina íslensku sifjalaganefnd skipa dr. Ármann Snævarr hæstaréttardómari, sem er formaður hennar og hefur sótt marga fundi hinnar sameiginlegu norrænu nefndar fyrir Íslands hönd. Einnig eru í nefndinni Auður Auðuns fyrrv. alþm., Baldur Möller ráðuneytisstjóri og Guðrún Erlendsdóttir lektor. Næsti sameiginlegi fundur sifjalaganefndanna verður hér á landi á vori komanda.
Þegar um það er spurt, hvenær vænta megi að frv. að lagasetningu verði lagt fram, verður að segja að erfitt er að fullyrða um það, en hugsanlegt þó að það geti orðið á Alþingi er saman kemur á næsta hausti.