27.10.1981
Sameinað þing: 10. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (222)
22. mál, fiskiræktar- og veiðmál
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Hv. 6. þm. Norðurl. e. spurðist fyrir um það, hversu mikið af því fé, sem varið hefur verið til fiskræktar- og veiðimála samkv. 3. gr. laga nr. 43/1979, hefði runnið til Hólalax h f. Af þessum 1 millj. 882 þús. kr. hefur verið varið til Hólalax h f. 900 þús. eða tæplega helmingi og er það lánsfé. Um 597 þús. kr. af þessu fé hefur verið veitt sem framlög en 1285 þús. kr. sem lánsfé, þar af 900 þús. kr. sem lánsfé til Hólalax h. f. Hólalax hefur auðvitað fengið lánsfé víðar að, auk hlutafjár sem lagt hefur verið fram bæði af ríkinu, 40%, og af veiðifélögum á Norðurlandi vestra, 60%, en ekki er ástæða til að rekja það frekar.
Ég hygg að með þessu sé svarað spurningu hv. þm. Ég tek undir það sem fram kom í hans máli, að við þurfum að leitast við, að hafa samstarf við aðrar þjóðir um þessi mál, þ. á m. Grænlendinga, og hafa viðræður farið fram á milli fulltrúa þjóðanna um þau efni.
Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta mál. Ég endurtek að hér hefur verið hreyft þýðingarmiklu máli sem ég hef hvergi dregið úr. Ég fagna því, ef Alþingi vill gera betur í þessum málum en gert hefur verið síðustu tvö árin. Ég vona að við eigum svo mikla möguleika í þessari grein hér á landi, fiskræktarmálunum og veiðimálunum í heild, að það fjármagn, sem til þeirra er látið renna, skiti sér í auknum tekjum til þjóðfélagsins.