23.02.1982
Neðri deild: 44. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2618 í B-deild Alþingistíðinda. (2237)

205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Hv. 12. þm. Reykv. hefur kallað aftur brtt. sem hann átti á þskj. 356. Með vísun til nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. og orða frsm. nefndarinnar, hv. 1. þm. Reykn., er þessi till. tekin upp aftur og liggur því fyrir áfram til umr. og afgreiðslu.