24.02.1982
Neðri deild: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2653 í B-deild Alþingistíðinda. (2277)
205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á að vísa því algjörlega á bug, að ég hafi farið hér með einhverja sögufölsun, en ég vil um leið vekja athygli þingdeildarinnar á því sem hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson annars vegar og hins vegar hv. þm. Páll Pétursson sögðu. Hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson sagði orðrétt, að frv., sem við erum að fjalla hér um, hefði aldrei verið lagt fyrir þingflokk Framsfl. Síðan kemur hv. þm. Páll Pétursson hingað upp og segir að hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson hafi ekki setið þann þingflokksfund þar sem endanlega var gengið frá þessu máli. (Gripið fram í: Frá málinu.) Þetta er orðrétt skrifað eftir þeim báðum. Nú vil ég fá skýringu á því, hvað hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson var að fara þegar hann segir að frv. hafi aldrei verið tekið til afgreiðslu í þingflokki Framsfl. (Gripið fram í: Það er ekki hægt að heimta hérna hvað sem er.) Það er alveg rétt. Það er rétt á mörkunum að það sé hægt að heimta hvað sem er. Engu að síður stendur það sem ég sagði hér áðan. Sú runa mistaka, sem Framsfl. hefur orðið á við afgreiðslu þessa máls, er staðreynd, og því haggar því ekki neinn maður með neinum orðum að þessi mistök eru auðvitað mjög alvarleg fyrir flokk sem á aðild að ríkisstjórn. Ef það er rétt, sem hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson segir, að þetta frv. hafi aldrei verið tekið fyrir í þingflokki Framsfl., er það sýnu alvarlegra mál.
Ég vil, herra forseti, endilega fá svör við því, hvort málið hafi verið tekið fyrir í þingflokknum eða hvort hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson hafi verið fjarverandi, því að annar hvor segir ósatt.