24.02.1982
Neðri deild: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2656 í B-deild Alþingistíðinda. (2286)
205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Það er ljóst að hæstv. ríkisstj. flokkar ekki byggingariðnað undir iðnað í þessu landi, þvert ofan í íslensk lög. Ég segi já af því ég flokka þann iðnað með öðrum iðnaði.