25.02.1982
Sameinað þing: 57. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2670 í B-deild Alþingistíðinda. (2300)
171. mál, viðbótarsamningur við Norður-Atlantshafssamninginn
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Virðulegur þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur nú enn einu sinni látið sitt rauða leiðarljós skína þegar utanríkismál koma á dagskrá. Þm. talaði enn hér gegn aðild Spánar að NATO eins og við hér á Alþingi Íslendinga værum að taka um það ákvörðun, hvort Spánn gerðist aðili að NATO eða ekki. Ríkisstjórn Spánar tekur sjálf þá ákvörðun að fengnu samþykki þjóðþings spönsku þjóðarinnar.
Hér er til umr. þáltill. sem opnar spönsku þjóðinni leið til þess að gerast félagi í bandalagi vestrænna þjóða og þar með styrkja samstöðu þeirra sem verja vilja vestræna samvinnu og frið. Ég vil opna þessa leið til samstarfs sem flestra ríkja í þessar samsteypu vestrænna þjóða og segi því já.