03.03.1982
Neðri deild: 48. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2836 í B-deild Alþingistíðinda. (2383)
Umræður utan dagskrár
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Varðandi fyrri fsp. hv. þm., hvort þetta mál hafi verið rætt í ríkisstj., get ég sagt að það var ekki rætt í ríkisstj., enda lítið tilefni til þess. Hins vegar var ýmsum ráðh. í ríkisstj. kunnugt um þessa ráðstöfun. Varðandi það, að engar heimildir liggi fyrir um þessa ráðstöfun, sem ég taldi raunar fullsvarað áðan, er fjárlagafrv. auðvitað ekki hið sama og fjárlög. Fjárlögin segja að til fjárfestinga í þessu fyrirtæki sé ætlað að verja 5 millj. kr. Þar af eru lántökur 2 millj. kr. og annað — það er væntanlega framlag ríkissjóðs — 3 millj. kr. Hvort hlutaféð er 2 eða 3 af þessum 5 millj. skiptir ekki höfuðmáli. En það er ljóst að hvað sem því líður er ærið fé samt eftir til þess að unnt sé að ráðstafa því á þennan hátt til þessa verkefnis, enda er algengt að ráðstöfun á fé til hvers og eins verkefnis sé ekki svo rígskorðuð í fjárlögum að þar verði engu breytt frá því sem ef til vill hefur verið gert ráð fyrir í tillögum sem fyrir liggja þegar fjárlög eru til meðferðar Alþingis. Það er algengt og ætti hv. þm. Sighvati Björgvinssyni að vera um það fullkunnugt. Ég tel því að fyrir því séu fullar heimildir að þessi ráðstöfun sé gerð. Ég hef auðvitað ekki talið neina ástæðu til að kanna það mál frekar en hér hefur verið gert og tel ekki ástæðu til að vantreysta því, að heimilt sé að ráðstafa því fé, sem er á fjárlögum, í því skyni sem hér kemur fram.
Varðandi það atriði, sem ekki snertir þetta mál, að ég gegni ýmsum ráðherraembættum nú um fáa daga, þá er til á því einföld skýring hvers vegna ég fer með þessi mái. Þegar samflokksmenn starfa í ríkisstjórn og einhverjir þeirra fara utan er ven ja að sá þeirra gengi embætti fyrir hina sem eftir er heima. Ef svo vill til að allir ráðh. frá tilteknum stjórnmálaflokki sem á aðild að ríkisstjórn, hverfa af landi brott í senn er ven ja að forsrh. taki að sér að fara með þeirra mál. Þannig leiðir það af því, að ég gegni nú starfi fyrir forsrh., að ég gegni einnig störfum fyrir ráðh. Alþb.