09.03.1982
Sameinað þing: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2888 í B-deild Alþingistíðinda. (2443)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Alþingi, 9. mars 1982. „Eggert Haukdal, 6. þm. Suðurl.. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður L-listans í Suðurlandskjördæmi, Siggeir Björnsson bóndi, Holti, Kirkjubæjarhreppi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Alexander Stefánsson, forseti Nd.

Siggeir Björnsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og rannsókn kjörbréfs hans þá farið fram og býð ég hann velkominn til starfa á Alþingi.