09.03.1982
Sameinað þing: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2900 í B-deild Alþingistíðinda. (2454)
382. mál, norrænt samstarf á sviði menningarmála
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Mér þykir leitt ef hæstv, ráðh. skilur ekki enn þá það sem ég hef verið að segja nú og áður úr þessum ræðustól um þessi og svipuð mál. Það þýðir einfaldlega að hæstv. ráðh. skilur ekki gang viðskipta og það þykir mér eiginlega verra.
Það, sem ég hef talað um, er ekki að semja árlega um verð á olíu og þá líklega til árs í senn eða lengri tíma. Ég er ekki að tala um hvað verð í Sovétríkjunum er á einum tíma eða öðrum. Ég er ekki heldur að tala um hvað verðið er á Rotterdam-markaði frá einum tíma til annars. Ég er að tala um það, að íslenska ríkið komist hjá því að fjárfesta í olíubirgðum í landinu. Til þess að einfalda þetta sem ég er að segja, þá gæti ég vel hugsað mér að þannig yrði staðið að því að íslenski markaðurinn í heild væri boðinn út, hann væri boðinn út með þeim skilmálum sem henta okkur, og það eru þeir skilmálar, að viðkomandi aðili ætti alltaf tilteknar birgðir hér á landi á eigin kostnað gegn því að hafa aðgang að markaðinum. En í dag fjárfestum við svo milljörðum nýkróna skiptir í olíubirgðum og allt á kostnað viðskiptabankanna.
Hæstv. ráðh. sagði að við kæmust ekki hjá því að greiða fyrir olíuna. Auðvitað komumst við ekki hjá því, það var óþarfi að taka það fram. En það er óþarfi að þurfa að hlíta þeim kostum sem þeir setja. Ég veit ekki hverjir þeir eru, eins og hæstv. ráðh. tók fram. Mín hugmynd er sú — og ég vona að ég þurfi ekki að koma hingað upp oftar til þess að undirstrika hana — að við kaupum af birgðum olíuframleiðenda, af birgðum sem þeir eiga hér á landi, og greiðum fyrir það magn, sem við tökum út frá degi til dags og við þurfum að nota hér á landi, það verð sem er á olíunni, heimsmarkaðsverð hvers dags.
Ísland þarf alltaf að vera eitthvað sérstakt. Aðrar þjóðir greiða verðið frá einum degi til annars, það eru dagprísar sem gilda. Þetta þýðir að ég vil flytja fjárfestingarkostnaðinn frá innlendum aðilum yfir á erlendu aðilana svo að olíuverðið lækki sem því nemur.