10.03.1982
Efri deild: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2946 í B-deild Alþingistíðinda. (2497)

144. mál, almannatryggingar

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., er í sjálfu sér ekki nýtt á Alþingi. Hér er um að ræða framlengingu á sjúkratryggingagjaldi, sem lagt var fyrst á í tíð ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar og hefur verið lækkað allverulega í tíð núv. ríkisstj. Það er till. meiri hl. n. að þetta frv. verði samþykkt.