16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3090 í B-deild Alþingistíðinda. (2629)

Umræður utan dagskrár

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil staðfesta það, að hæstv. forseti hefur um þessi mál haft samráð við okkur formenn þingflokka Alþfl. og Sjálfstfl. Auk þess vil ég bæta því við, að það var með stuðningi formanns þingflokks Framsfl. sem við fórum fram á að þessari umr. yrði flýtt.