16.03.1982
Sameinað þing: 65. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3118 í B-deild Alþingistíðinda. (2661)

Umræður utan dagskrár

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. En út af ræðu hv. síðasta ræðumanns verð ég að viðurkenna að hv. þm. hefur mikið lært af þessari einu kennslustund í 7 ára bekk. Mér sýnist um mikla framför að ræða frá því sem hefur áður verið hjá hv. þm. Færi hann þó ekki væri nema í tvær — þrjár kennslustundir til viðbótar væri mikill munur á þingmannsferli hans eftir en áður.