23.03.1982
Sameinað þing: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3171 í B-deild Alþingistíðinda. (2778)
226. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Ég hélt að ég þyrfti ekki að biðja aftur um orðið. Hæstv. félmrh. gaf þá yfirlýsingu áðan, að hann ætlaði ekki að fara að tala um húsnæðismálin almennt. En hann gerði það heldur betur og tók sérstaklega bankakerfið fyrir og hallmælti bönkunum að vilja ekki vera jákvæðir í húsnæðismálunum. Þetta minnir mig á það, að þegar veðlánakerfið var sett upp var það byggt upp í samráði við og með aðstoð og með beinni þátttöku bankanna. Ég hef nokkuð fylgst með þessu í gegnum árin. Ég hef ekki orðið var við að það hafi verið viljaleysi af hálfu bankanna, heldur hafi vandinn verið hvernig ætti að ráðstafa því takmarkaða fé sem bankarnir hafa.
Hæstv. ráðh. hefur sýnt meira ráðleysi í húsnæðismálunum en dæmi eru til af nokkrum félmrh., og á ég þá við það, hvernig hann hefur staðið að því að svipta almenna veðlánakerfið og Byggingarsjóð ríkisins þeim tekjustofnum sem hafa staðið undir eðlilegum rekstri.