23.03.1982
Sameinað þing: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3191 í B-deild Alþingistíðinda. (2802)

235. mál, menntun fangavarða

Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmrh. svör hans. Ég vil þakka honum fyrir skýrsluna, sem hér hefur verið dreift á borð þm., og það frv., sem hann hefur nú lagt fram í hv. Nd. sem fyrsta áfanga að því að koma þessari skýrslu eða nefndaráliti í framkvæmd.

Fyrir hönd okkar þremenninga, sem stóðum að flutningi þessarar þáltill. í fyrra, vil ég nota þetta tækifæri til að þakka nefndinni, sem vann þetta starf, mjög skjót og góð vinnubrögð. Ég vænti þess sannarlega að í ljós komi að hún hafi haft erindi sem erfiði.