24.03.1982
Neðri deild: 57. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3244 í B-deild Alþingistíðinda. (2847)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Aðeins örfá orð út af því sem fram kom hjá hæstv. fjmrh.
Hæstv. ráðh. sagði að haft hefði verið samband við þá þm. í fjvn., sem styddu hæstv. ríkisstj., um niðurskurð sem fyrirhugaður er á fjárlögum sem afgreidd voru nýlega eða í raun og veru væri búið að ákveða. Mér heyrðist allt annað í máli hv. þm. Eggerts Haukdals áðan en að haft hefði verið samráð við hann um slíkan niðurskurð, og ég vil gjarnan spyrja hv. þm. Eggert Haukdal um það. Hefur hann lagt blessun sína yfir þann niðurskurð sem hæstv. fjmrh. var hér að lýsa, upp á 120 millj.? (Gripið fram í: Ég hef ekki gert það.) Einmitt það. Það kemur fram, hæstv. fjmrh., að meiri hl. í fjvn. hefur ekki lagt blessun sína yfir þennan niðurskurð. Það er víðs fjarri. Það er minni hl. fjvn., eftir því sem hv. þm. Eggert Haukdal segir, sem hefur þá lagt blessun sina yfir þennan niðurskurð. Það eru þá einvörðungu fjórir af stjórnarliðum, af þeim fimm sem nefndina skipa, sem hafa lagt blessun sína yfir þann niðurskurð sem hæstv. fjmrh. var að lýsa. Í ljósi þess skil ég afskaplega vel að hæstv. ráðh. skyldi ekkert vilja um það ræða hér í kvöld, en lýsa yfir að hann mundi fara frekari orðum um það við upphaf 3. umr. málsins hér. Það er sem sagt staðreynd, að það er ekki meiri hl. í fjvn. fyrir þeim niðurskurði sem hæstv. fjmrh. hefur lýst. Stjórnarliðið stendur ekki að þeim niðurskurði, það er ljóst.
Að því er varðar það sem hæstv. ráðh. sagði um heimildir til skipakaupa, þá dreg ég mjög í efa að það sé rétt hjá hæstv. fjmrh., að til séu heimildir fyrir því að ganga frá skipakaupum eins og mér er tjáð að búið sé að gera. Ég dreg mjög í efa að slíkar heimildir séu fyrir hendi því að mér skilst að það sé búið að ganga frá þessum kaupum. (Fjmrh.: Ekki lántökuheimildinni.) Það er búið að undirskrifa kaupsamninga. Er það ekki rétt, hæstv. ráðh.? Já eða nei. (Fjmrh.: Ég þekki það ekki.) Á, það var nefnilega það! Hæstv. ráðh. þekkir ekki málið, en segir þó hér að allar heimildir hafi verið til slíkra ráðagerða sem hér er um að ræða. (HÁ: Ertu á móti kaupunum?) Það var engin umr. um það, hv. þm. Halldór Ásgrímsson. Spurningin var um heimildir til að undirskrifa og gera kaupsamning, eins og búið er að gera, og menn eiga ekki hér vísvitandi að ljúga til um það sem verið er að gera. (Fjmrh.: Hver hefur gert það?) Mér heyrist á öllu að hæstv. fjmrh. fari með ósannindi að því er varðar málið. (Fjmrh.: Mér heyrðist spurt um heimildirnar, en ekkert annað.) Það eru engar heimildir fyrir því að ganga frá kaupsamningi. Í vörninni fer hæstv. fjmrh. í að lýsa yfir að hann viti ekki um málið. Slíkur er málflutningur hæstv. ráðh. í þessu máli. Sé hann eins í öðrum geta menn leitt getum að því, hvernig staðan er og hvernig staðið er að málum í hæstv. ríkisstj. Þá er komið sama upp á teningnum og hæstv. utanrrh. sakaði iðnrh. um í umr. í gær. Allt bendir þetta á ráðslag eða vinnubrögð hæstv. ráðh. Alþb. Það eru alltaf þeir sem eru sakaðir um að beita vinnubrögðum sem eru ámælisverð og gagnrýnisverð.
Það er ljóst af svari hæstv. fjmrh., að það á ekki að aðstoða sveitarfélög, sem hlut eiga að máli, í sambandi við framkvæmdir í skipaiðnaði. Það var hreint og klárt nei við þeirri spurningu. Þau skulu sjá um sig sjálf þrátt fyrir að vitað er að það væri brýn þörf á að tekin hefði verið inn í t.d. lánsfjárlög heimild til þessara sveitarfélaga til að taka erlend lán til að fjármagna sinn hluta af þessum framkvæmdum. Þetta var gert 1980 og er því fordæmi fyrir því. Ég tel enga ástæðu til annars en að hæstv. ríkisstj., ef hún á annað borð meinar eitthvað með því, að slíkar framkvæmdir eigi sér stað, geri slíkt hið sama á árinu í ár.
Það er einnig ljóst af svörum hæstv. ráðh. að það liggur ekkert fyrir um með hvaða hætti á að leggja á hinn svokallaða byggðalínuskatt. Ég man ekki betur en að í grg. með fjárlagafrv. hæstv. ríkisstj. fyrir árið í ár hafi þetta verið kallaður skattur á byggðalínur. Ég skal ekki fullyrða um það, en mikið má vera ef það er ekki ýjað að því í grg. hæstv. fjmrh. með fjárlagafrv. fyrir árið í ár, að hér sé um að ræða skatt á byggðalínur. Enn liggur ekkert fyrir um með hvaða hætti það á að gerast og þó er tiltölulega stuttur tími eftir af þinghaldi. Þetta ber auðvitað enn vitni þess, hvernig staðið er að málum og hver vinnubrögð eru viðhöfð í hæstv. ríkisstj.
Ég skal ekki, herra forseti, hafa um þetta öllu fleiri orð. Ég held að það sé í jóst, að það mál, sem við erum hér að ræða nú, ber nákvæmlega sama keim þeirra fljótræðislegu og stjórnunarlausu aðgerða hæstv. ríkisstj. og stjórnarmeirihluta hér á Alþingi og ótalmörg önnur mál — meiri háttar mál og raunar smærri líka sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt fyrir þingið.