25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3254 í B-deild Alþingistíðinda. (2862)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Úrslit atkvgr. voru vefengd og það er mjög algengt að forseti verði við því að endurtaka atkvgr., sem vefengd hefur verið, til að taka af tvímæli. Nú stóð til að endurtaka hana eins og sjálfsagt var, en í því sama bili er kölluð aftur brtt. og síðan brtt. við brtt. sem til umr. og afgreiðslu voru.