25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3257 í B-deild Alþingistíðinda. (2878)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Eins og fram kom í umr. sem fram fóru í gær hef ég gert ráð fyrir því að gera grein fyrir áformaðri lækkun ríkisútgjalda við 3. umr. málsins. Jafnframt hef ég alltaf gert ráð fyrir því, að samráð verði haft við fjvn. þótt ákvörðunin verði háð endanlegri ákvörðun ríkisstj. Ég segi nei.