25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3262 í B-deild Alþingistíðinda. (2902)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Ég vil leiðrétta það sem kom fram hjá hv. þm. Árna Gunnarssyni. Nefnd, sem vinnur að þessum málum, ritaði bréf til landbrh. 19. okt. 1981 og það var fljótlega, ég held að það hafi verið í janúarmánuði, sem landbrh. kom að máli við mig og sjálfsagt fleiri og taldi mikilvægt að þetta atriði lægi fyrir. Hér er um það að ræða, að þeir aðilar, sem hugsanlega vildu fara út í slíkan atvinnurekstur gangi að því sem vísu að heimilt sé að fella niður aðflutningsgjöld. Menn tala oft fagurlega um það hér á Alþingi að skapa eigi einstaklingunum skilyrði til að byggja upp atvinnurekstur. Það er verið að gera hér. En því miður má það vera rétt. að ekki muni vera til aðilar sem vildu notfæra sér þessi skilyrði. En það kemur skýrt fram í því bréfi, sem kom til nefndarinnar, að það er gert ráð fyrir að þetta ylræktarver, ef byggt verður, verði á svæðinu umhverfis eða við Hveragerði. Ég segi já.