25.03.1982
Sameinað þing: 69. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3262 í B-deild Alþingistíðinda. (2905)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 25. mars 1982. Helgi Seljan, 2. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég sakir veikinda mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sveinn Jónsson verkfræðingur, Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Helgi Seljan,

forseti Ed.

Sveinn Jónsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili, rannsókn kjörbréfs hans þá farið fram og býð ég hann velkominn til starfa.