29.03.1982
Efri deild: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3303 í B-deild Alþingistíðinda. (2928)

90. mál, Hæstiréttur Íslands

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég vil nota tækifærið til að lýsa samþykki mínu við það álit allshn., að nauðsyn beri til að endurskoða frv. til lögréttulaga, sem alloft hefur verið lagt fram á Alþingi, en eigi náð fram að ganga. Ég segi já.