31.03.1982
Sameinað þing: 72. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3423 í B-deild Alþingistíðinda. (2994)
246. mál, viðauki við vegáætlun 1981--1984
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil eins og aðrir hv. ræðumenn fagna því, að þessi þáltill. er komin fram, og ég vonast til að hún fái greiðan framgang hér á hv. Alþingi. Þeir vegir, sem hér um ræðir, eru óneitanlega rétt metnir sem lífshættulegir vegir, og raunar eru allar þessar þrjár leiðir með hæstu slysatíðni eins og Vegagerðin mælir slíkt. Allir þessir vegir hafa það sameiginlegt, að þeir eru aðalsamgöngutenging viðkomandi byggðarlaga og íbúar þessara svæða eru svo til algerlega háðir þessum vegum í sambandi við aðallífsþarfir sínar hvað varðar heilbrigðismál, viðskipta- og atvinnumál. Allir eru vegirnir lífshættulegir. Ég get nefnt sem dæmi að nú í vetur hafa t.d. fallið aurskriður í Ólafsvíkurenni eins og hendi væri veifað dag eftir dag og er talið að magnið í stærstu skriðunum hafi verið milli 50 og 70 þús. rúmmetrar. Gjár opnuðust í fjallið alveg upp á topp og skriður náðu út í stórstraumsfjöruborð. Má segja að það sé mikil mildi að ekki skuli hafa orðið stórslys í sambandi við þessi skriðuföll, þó að litlu munaði í eitt skiptið þar sem áætlunarbifreið full af fólki hafi farið um veginn nokkrum mínútum áður en skriðan féll. Þetta sýnir best hve rétt mat það er hjá öllum aðilum, sem um þessi mál hafa fjallað, að flokka slíka vegi undir lífshættulega vegi.
En það, sem ég vil aðeins koma hér inn á, er í sambandi við fjármögnun þessara framkvæmda. Það er óneitanlegt, að hér er um stórframkvæmdir að ræða í vegagerð á Íslandi þar sem hér er um fjárhæðir að ræða sem nema hundruðum millj. kr. Það var alltaf sú hugsun hjá mér og sjálfsagt mörgum fleiri, að það yrði að meðhöndla þessa svokölluðu Ó-vegi á sérstakan hátt, þannig að gert yrði ráð fyrir að útvega til þeirra sérstakt fjármagn sem væri utan við vegáætlunina sjálfa. Ég held að flestir hafi reiknað með að þannig yrði hægt að standa að þessum verkefnum. Mér finnst að það sé a.m.k. enn þá möguleiki á að skoða það vandlega í sambandi við vegáætlunina, þegar hún verður endurskoðuð, að marka þessu þennan farveg.
Ég tel sérstaka ástæðu til þess við fyrri umr. um þessa þáltill. að lýsa yfir ánægju minni og stuðningi við þá ákvörðun stjórnenda Framkvæmdastofnunar ríkisins að lána fé til þessara vegaframkvæmda og raunar þá ákvörðun að stórauka afskipti Framkvæmdastofnunar af fjárframlagi eða fjárútvegun til vegamála almennt. Ég hef lýst þeirri skoðun her áður og get endurtekið hana, að ég tel að stórframkvæmdir í vegagerð á Íslandi séu eitt stærsta byggðamálið, sem nauðsynlegt er að vinna að hér á landi, og ég tel að það sé út af fyrir sig eðlileg og sjálfsögð stefna stjórnenda Framkvæmdastofnunarinnar að auka fjármagn til vegaframkvæmda.
Ég ætla ekki að lengja þessar umr. þar sem ég kem til með að fjalla frekar um þessa till. sem einn af nm. í fjvn. En ég endurtek að ég vænti þess, að hv. þm. verði sammála um að hér eru nauðsynjamál á ferð og allir þessir Ó-vegir, hvar á landinu sem þeir eru, eigi að meðhöndlast þannig að það verði samstaða um að leggja þá alla. Ekki kemur til greina að hafa neinn meting um þetta verkefni. Öll þau byggðarlög, sem hér um ræðir, eru í raun og veru á sama báti hvað varðar þýðingu þessara vega, og við eigum að standa saman sem einn maður um að reyna að finna möguleika á að hrinda þessum framkvæmdum fram eins fljótt og við verður komið.