01.04.1982
Neðri deild: 60. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3505 í B-deild Alþingistíðinda. (3055)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Eins og fram hefur komið fengu fulltrúar Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. þá grg., sem fjmrh. gat um áðan, um lækkun ríkisútgjalda, þegar umr. hófst í dag rétt um tvöleytið. Þar sem hér er um að ræða þann niðurskurð sem gert er ráð fyrir í frv. eins og það lítur út nú hefði verið eðlilegast að fundur hefði verið haldinn í nefndinni, gefið út framhaldsnefndarálit og þetta fylgt sem fskj. sem forsenda þeirrar heimildar sem ráðh. er að afla sér.