02.04.1982
Efri deild: 63. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3533 í B-deild Alþingistíðinda. (3076)

28. mál, almannatryggingar

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Ég hefði kannske átt að geta þess áðan, einmitt vegna þess að það kom fram í umr. um þetta mál hvort ekki þyrfti að setja ákvæði inn í þessa lagagrein varðandi verðbreytingar, að við lítum svo á að slíkar heimildir til verðbreytinga séu þegar fyrir hendi í niðurlagi 43. gr. almannatryggingalaganna.