04.11.1981
Efri deild: 9. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (311)

Umræður utan dagskrár

Davíð Aðalsteinsson:

Herra forseti. Þetta eru orðnar alllíflegar umr. En ég vildi aðeins segja frá því, og vonandi er það rétt hermt, að hringt var í mig ofan af Akranesi og mér tjáð að það væri alls ekki útilokað að kennsla hæfist í öldungadeildinni þar í dag. Við skulum vona að þetta sé rétt eftir haft. Það léttir auðvitað áhyggjum af okkur, alla vega vegna Akraness.