05.04.1982
Efri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3601 í B-deild Alþingistíðinda. (3139)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf:
„1. apríl 1982. Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með tilvísun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Guðmundur Gíslason kaupfélagsstjóri, Stöðvarfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
1. þm. Austurl. Tómas Árnason.“
Guðmundur Gíslason hefur setið áður á Alþingi og býð ég hann velkominn til starfa.