05.04.1982
Neðri deild: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3633 í B-deild Alþingistíðinda. (3174)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vek athygli á að brtt. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. á þskj. 501 hefur þegar verið felld. Ég hafði gert mér vonir um, þegar þm. Alþfl. í nafnakalli við 1. gr. gerðu ýmist að samþykkja till. eða sitja hjá, að það væri von um að fá þó skattinn lækkaðan. En nú er komið í ljós að þetta er einungis málamyndatillaga á þskj. 501 og þeir láta sig einu gilda hversu hár skatturinn er. Þetta er dapurleg niðurstaða af þeirra hálfu. Ég segi nei.