14.04.1982
Neðri deild: 63. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3713 í B-deild Alþingistíðinda. (3232)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Ég sé nú reyndar að hv. 1. þm. Reykv. er genginn í salinn, en þegar þetta mál var hér síðast á dagskrá óskaði hann eftir því að fá að beina til hæstv. viðskrh. nokkrum fsp. varðandi þetta mál. Ég vil því fyrir hönd hv. 1. þm. Reykv., þó hann sé mættur, óska eftir að við þessu verði orðið.