19.04.1982
Efri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3901 í B-deild Alþingistíðinda. (3377)

291. mál, lagmetisiðnaður

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 58 frá 4. júní 1981, um lagmetisiðnað og Þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins. Frv. þetta felur í sér samkv. 1. gr. að lögin um lagmetisiðnað, þ.e. l. kafli umræddra laga, verði framlengdur um eitt ár.

Frv. er flutt að beiðni stjórnar Sölustofnunar lagmetis sem telur áríðandi að yfirstandandi þing framlengi núverandi starfsréttindi stofnunarinnar sem felast í þessum lögum. Sérstaklega telur stjórnin mikilvægt að stofnunin hafi áfram einkarétt til að annast sölu á niðursoðnum og niðurlögðum sjávarafurðum til landa þar sem ríkisstofnun, ríkið sjálft eða aðili fyrir þess hönd, er aðalkaupandinn.

Rök fyrir einkarétti eru m.a. þau, að í löndum Austur-Evrópu er einn kaupandi og því ekki um neina samkeppni kaupandamegin að ræða. Þessi einkakaupandi væri í aðstöðu til að fara milli seljenda á Íslandi og freista þess að fá verðið lækkað ef ekki væru ákvæði sem kæmu í veg fyrir slíkt. Einhliða samkeppni seljendamegin hlýtur að vera seljendum í óhag. Rétt er því að bregðast við þessu með einkarétti til Sölustofnunar lagmetis til umræddra landa og jafna þar með samningsaðstöðu seljanda og kaupanda.

Iðnrn. hefur farið yfir þetta mál og telur rétt og nauðsynlegt að framlengja einkarétt Sölustofnunarinnar eins og fram kemur í frv. Raunar hefði ég talið æskilegt að gera það til lengri tíma en hér er lagt til, en um annað var ekki samstaða en að þetta yrði til eins árs að þessu sinni, þannig að málið kæmi þá til endurskoðunar á næsta þingi. Ríkisstj. hefur fallist á þau sjónarmið sem fram eru borin með þessu frv., og ég vænti að það verði lögfest á þessu þingi, enda um mjög einfalt mál að ræða í rauninni.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. iðnn.